Nichole Leigh Mosty hlýtur styrk til doktorsrannsóknar
- rosaerlings6
- 5 days ago
- 1 min read
Við hjá Framtíðarfólki óskum Nichole Leigh Mosty, sem er hluti af stjórnunarteymi okkar, innilega til hamingju með styrk úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Nichole er ein þriggja doktorsnema sem hlutu styrk að þessu sinni. Doktorsverkefni hennar snýr að því hvernig nýta megi fullorðinsfræðslu til að efla samfélagsþátttöku erlends leikskólastarfsfólks.
Við erum afar stolt af Nichole og því mikilvæga framlagi sem rannsókn hennar getur haft fyrir leikskólastarf, fjölmenningu og þátttöku starfsfólks af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.
Innilegar hamingjuóskir, Nichole!


Comments