top of page

Fréttir úr starfinu

Nov 10
1 min read

Aðventan nálgast og við á Áshamri hlökkum til notalegs desembermánaðar með börnunum. Við leggjum áherslu á rólegheit, samveru og hæglæti og viljum að börnin njóti aðventunnar án asa. Hér er það helsta sem er á dagskrá hjá okkur í mánuðinum:

  • Vasaljósaganga alla þriðjudagsmorgna. Börnin fara með vasaljós í gönguferð um hverfið og leikskólagarðinn í morgunmyrkrinu.

  • Fimmtudagur 3. desember kl. 14:00–15:30: Opið hús. Jólaföndur og kaffi með foreldrum í leikskólanum.

  • Föstudagur 11. desember: Jólasveinarnir koma í heimsókn að morgni og í hádeginu er jólamatur barnanna.

  • 14.–22. desember: Kaffihús með leikskólastjórum. Börnin koma í litlum hópum í kaffihúsið okkar og fá heitt kakó og vöfflur.

  • Skráningardagar eru 21., 22., 23., 28., 29. og 30. desember. Þessa daga mæta aðeins þau börn sem hafa verið skráð. Skráning fer fram í Völu og henni lýkur 23. nóvember.

Dagskráin er einnig í dagatalinu í Völu. Ef einstakir hópar fara í aukaferðir, til dæmis skólahópur í vettvangsferð, fá foreldrar þeirra barna sérstaka tilkynningu.

Við hlökkum til að eiga góða aðventu með börnunum ykkar og ykkur.

Stjórnendur og starfsfólk Leikskólans Áshamars



 
 
 

Við hjá Framtíðarfólki óskum Nichole Leigh Mosty, sem er hluti af stjórnunarteymi okkar, innilega til hamingju með styrk úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.


Nichole er ein þriggja doktorsnema sem hlutu styrk að þessu sinni. Doktorsverkefni hennar snýr að því hvernig nýta megi fullorðinsfræðslu til að efla samfélagsþátttöku erlends leikskólastarfsfólks.


Við erum afar stolt af Nichole og því mikilvæga framlagi sem rannsókn hennar getur haft fyrir leikskólastarf, fjölmenningu og þátttöku starfsfólks af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.


Innilegar hamingjuóskir, Nichole!


 
 
 
bottom of page