top of page

Hæglæti í daglegu starfi

Hæglæti felst í að skapa jafnvægi, vera til staðar í augnablikinu og rækta tengsl við fólk, umhverfi og viðfangsefni. Hugmyndafræði hæglætis byggir á þeirri sýn að tíminn sé dýrmæt auðlind sem við mótum og nýtum af ásetningi, fremur en að láta hraða og annríki stýra upplifun okkar. Í hægri uppeldisfræði (slow pedagogy) er lögð áhersla á að börn fái tíma og rými til að sökkva sér í leik og nám, velta vöngum, spyrja spurninga og leita eigin leiða að svörum. Könnunarleikur, skapandi starf og fjölbreyttar skynjunarupplifanir eru dæmi um starfshætti sem styðja við hæglæti í leikskólastarfi. Hjá Framtíðarfólki á Áshömrum leitast við að skapa aðstæður þar sem hæglæti fær að njóta sín í daglegu starfi – í skipulagi dagsins, í umhverfinu, í samfelldum leik barna og í nærgætinni og virðingarríkri nærveru í samskiptum barna og fullorðinna.

01

20250820_140854_edited_edited.jpg

Hæglæti og hin fullorðna (kennarar)

Að dvelja með börnum er ein af lykilstoðum hæglætis. Hjá Framtíðarfólki leggjum við áherslu á að skapa aðstæður þar sem starfsfólk hefur svigrúm til að vera raunverulega til staðar með börnunum og fylgja þeim í leik, námi og uppgötvun. Börn eru alltaf skipt í litlum hópum sem gefur kennurum betri möguleika á að vera næmir fyrir upplifun, takti, hugmyndum og samskiptum hvers barns.

Nærvera starfsfólks felst ekki aðeins í því að vera nálægt, heldur að gefa sér tíma til að hlusta, fylgjast með og taka þátt í leik og samskipti barna. Starfsfólkið hægir meðvitað á sér og lítur á leik barna sem mikilvægt námsferli. Með virkri hlustun, einlægum samskiptum og þátttöku í leiknum myndast traust tengsl sem styðja við meðfædda forvitni barnanna og gefa þeim svigrúm til að læra og þroskast í eigin takti.

02

Hæglæti og umhverfi

Hæglæti, ró og djúp þátttaka barna verða ekki til af sjálfu sér heldur byggja á meðvitaðri mótun umhverfisins. Hjá Framtíðarfólki leggjum við áherslu á að skapa leikskólaumhverfi sem er vel ígrundað, hlýlegt, skipulagt og laust við óþarfa áreiti. Við drögum úr hávaða, takmörkum óþarfa umferð um rýmið og veljum leikefni og námsefni af kostgæfni með tilliti til aldurs, þroska og áhuga barna. Með því skapast aðstæður þar sem börn fá svigrúm til að staldra við, kafa djúpt í leik sinn og læra á eigin forsendum í rólegu og styðjandi umhverfi.

20250902_091934_edited.jpg

03

86019993-e137-4f88-b3b9-a25230d002ad_edited.jpg

Tíminn og hæglætið

Hæglæti felur í sér meðvitaða afstöðu til tímans. Það er svar við þeirri hraðamenningu sem einkennir marga þætti samfélagsins og getur dregið úr vellíðan, sköpunarkrafti og tækifærum barna og fullorðinna til að hugsa á gagnrýninn og ígrundaðan hátt. Dagskipulag leikskólans getur annað hvort viðhaldið þessum hraða eða skapað svigrúm fyrir börn til að njóta samveru, mynda tengsl, sökkva sér í leik og finna sinn eigin takt.

Hjá Framtíðarfólki leggjum við áherslu á að skapa tíma fyrir hæglæti í upphafi hvers dags. Sá tími kallast hæglætistími og felst í því að starfsfólk dvelur með litlum hópi barna í leik og könnun án fyrirfram ákveðinna afurða eða markmiða. Áherslan er að fylgja áhuga barnanna, gefa svigrúm fyrir undrun og uppgötvun og vera opin fyrir hinu ófyrirséða sem getur orðið til þegar nægur tími og ró fá að ráða för.

Í þessu rólega og örugga umhverfi gefast jafnframt dýrmæt tækifæri til uppbyggilegra samskipta milli barna og starfsfólks. Við teljum að með því að hefja daginn á þessum nótum sé lagður grunnur að menningu þar sem nærvera, forvitni og vellíðan fá notið sín. Sá taktur sem skapast í hæglætistímanum fylgir síðan börnum og starfsfólki áfram inn í daginn, bæði innan dyra og utan.

04

Málrækt go hæglæti

Málþroski blómstrar þegar börn fá tíma, athygli og tækifæri til að tjá sig á eigin forsendum. Hæglæti í leikskólastarfi skapar aðstæður þar sem samtöl fá að þróast án þess að hraði dagsins eða fyrirfram ákveðin markmið stýri samskiptunum. Þegar starfsfólk hægir á sér, hlustar af einlægni og dvelur með börnum í leik og könnun myndast rými fyrir ríkuleg samtöl, spurningar og sameiginlega hugsun. Rannsóknir á svokallaðri sustained shared thinking sýna að slík gagnkvæm samtöl styðja við málþroska, hlustunarfærni, tjáningu, orðaforða og getu barna til að setja orð á hugmyndir sínar, tilfinningar og upplifanir.

Hjá Framtíðarfólki lítum við á samskipti sem mikilvægan þátt í hæglæti. Með því að gefa börnum tíma til að tjá sig, hlusta á sjónarmið annarra og taka þátt í innihaldsríkum samræðum eflist sjálfstraust þeirra í samskiptum. Börn læra að fylgja samtali, hlusta af athygli, spyrja spurninga og miðla eigin hugmyndum á merkingarbæran hátt. Í rólegu og virðingarríku umhverfi fá þau tækifæri til að þróa mál sitt í takt við eigin þroska, á sama tíma og þau byggja upp sterkari tengsl við bæði jafnaldra og fullorðna.

8ee489d7-fc77-4807-a942-7a5e3a55ced1_edited.jpg
bottom of page