
Matreiðsluteymið
Hjá Framtíðarfólki leggjum við ríka áherslu á að börnin fái hollan, næringarríkan og bragðgóðan mat sem styður við vöxt, þroska og vellíðan.
Matarmenning okkar byggir á gæðum, ferskleika og virðingu fyrir líkama barnanna – og umhverfinu sem þau alast upp í.
Við fylgjum ráðleggingum Embættis landlæknis og bjóðum eingöngu upp á mat sem unninn er frá grunni í eldhúsi leikskólans. Við notum ekki unninn sykur í matargerð, heldur leitum í náttúrulega sætu, t.d. úr ávöxtum. Við bjóðum ekki upp á rautt né unnið kjöt, enda hefur slík fæða verið tengd við aukna heilsufarslega áhættu síðar á ævinni. Í staðinn byggir matseðillinn okkar á fersku grænmeti, ávöxtum, fiski, kjúklingi, baunum og heilkorni.
Börnin byrja daginn á heitum og næringarríkum hafragraut, heimagerðu múslí, döðlum eða rúsínum sem er fastur liður í morgunverðinum okkar alla virka daga.
Hádegismatur er jafnframt unninn frá grunni af matreiðsluteymi leikskólans, sem leggur sig fram um að bjóða börnum fjölbreyttan, hollan og vandaðan mat – í notalegu og hlýlegu matarumhverfi. Alltaf er boðið upp á jafn hollan valkost fyrir heilsu, menningar- og/eða lífsstengdar fæðisþarfir barna og starfsfólks.
Í síðdegishressingu hjá okkur er börnum boðið aftur upp á ferska niðurskorna ávexti, grænmeti og heimabakað hrökkkex sem inniheldur fjölbreytt mjöl (t.d. spelt, rúg og heilhveiti) og fræ. Með hrökkkexinu er borið fram heimatilbúið hummus eða yogurt ýdifu.
Matseðill vikunnar er alltaf aðgengilegur á smáforritinu Völu þannig að foreldrar geta fylgst með fæðu barna sinna og átt samtal við þau um mat og næringu.

