top of page
Framtíðarfólk leggur við mikla áherslu á fagmennsku í leik og starfi. Starfsfólk Framtíðarfólks hefur metnað til að sýna fagmennsku í allri starfsemi og tryggja þannig að gildin okkar: framsækni, vellíðan og samvinna endurspeglist í samskiptum og daglegu starfi með börnum og foreldrum.

Ein af grunnstoðum fagmennsku er vitund um gildi og tilgang verka okkur. Fagmennska felst í því að hafa tengsl við tilgang, grundvallarreglur og hugsjón í störfum okkar. Fagmennska er ábyrgð allra en mikilvægasta hlutverkið er í höndum leiðtogans.

Stjórnendur okkar
skapa sterkan grunn að bjartri framtíð

200767688_10158250741277253_6841121845818027256_n_edited.jpg

Framkvæmdastjóri Framtíðarfólks

Guðrún Jóna Thorarensen

Guðrún hefur starfað sem leikskólastjóri frá árinu 2007. Hún hefur tekið þátt í margvíslegum þróunarverkefnum um kennslu, námsumhverfi og faglega þróun starfsfólks 

Guðrún lauk B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2001 og mastersgráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands árið 2009. Í náminu öðlaðist hún skilning á skipulagi menntakerfa, stjórnunaraðferðum og þróun menntastefna. Guðrún leggur nú stund á meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Með áratuga reynslu af stjórnun leikskóla og rekstri, bæði innan opinbera geirans og í einkarekstri, hefur Guðrún þróað magvíslega færni í stjórnun og byggt upp bæði námsvænt og faglegt umhverfi. Áherslur hennar hafa alltaf verið að skapa umhverfi þar sem börn fá bestu mögulegu tækifæri til náms og þróunar ásamt því að byggja upp sterkan grunn fagmennsku, félagsfærni og vellíðunar meðal barna og starfsfólks.

Nichole_Leigh_Mosty_edited_edited.jpg

Leikskólastjóri með umsjón á faglega þróun

Nichole Leigh Mosty

Nichole er leiðtogi með víðtæka reynslu af stjórnun menntastofnana, samtaka og ríkisstofnana. Hún lauk B.Ed.-gráðu í leikskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007 og M.Ed.-gráðu í náms- og kennslufræðum árið 2013 frá Háskóla Íslands. Nichole er nú í doktorsnámi á menntavísindasviði, deild menntunar og margbreytileika við sama skóla.

Nichole hefur unnið ötullega að menntamálum, samfélagsþróun, málefnum innflytjenda og inngildingar með þróunarverkefnum, rannsóknum og forystu í stefnumótun á vegum stofnana og sveitarfélaga. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf, þar á meðal frá mennta- og banamálaráðuneytinu, Kennarasambandi Íslands, Reykjavíkurborg, Íslenskri málnefnd fyrir stuðning við tvítyngd börn og foreldra, og Evrópumerki fyrir starfstengda íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna í leikskólum.

Hún vinnur af mikilli elju að því að skapa aðlaðandi náms- og lærdómsumhverfi fyrir börn, starfsfólk og foreldra.

Framsækni

Til að tryggja farsæla framtíð fyrir allt okkar fólk erum við skuldbundin því að bjóða upp á metnaðarfulla og framfarasinnaða skólaþjónustu, góð samskipti og menntun.

Vellíðan

Jákvæð hugsun og viðhorf til lífsins og tilverunnar eru grunnur að vellíðan einstaklinga. Heilsa og vellíðan eru mikilvægar forsendur lífsgæða. Fjölmargir þættir hafa áhrif á að viðhalda og bæta andlega, líkamlega og félagslega heilsu og vellíðan. Framtíðarfólk leggur áherslu á að stuðla að vellíðan barna og starfsfólks. 

Samvinna

Samvinna hverfist um félagsleg samskipti. Börn og kennarar vinna í sameiningu að því að finna leiðir til að læra. Nám og leikur sem byggja á samvinnu á leikskólaaldri gegnir viðamiklu hlutverki í að byggja  upp samskipta- og félagsfærni barna, styrkja sjálfstæði þeirra í núverandi námi og á skólastigum framtíðarinnar. 

​

bottom of page