
Fréttir
Gott upplýsingaflæði er grunnur að samstarfi milli heimilis og skóla og við leggjum okkar fram við að halda foreldrum vel upplýstum.
Hér er hægt að nálgast nýjustu fréttir um starfið hjá okkur hér á Áshömrum.
Til viðbótar eru leikskólaráðgjafarnir að senda foreldrum reglulega fréttamólur og frásagnir vegna daglegs starfs og framþróunar með börnunum.
Leikskólastigin okkar
Starfshættir leikskólans byggja á heildstæðri nálgun. Megináhersla er lögð á útikennslu, sköpun, vellíðan barna og samvinnu. Með þessar áherslur að leiðarljósi stefnum við að því að skapa námsvænt umhverfi þar sem börn fá að þroskast á fjölbreyttan og heilbrigðan hátt.
Hjá Framtíðarfólki vinnum við með svæðisskipulag þar sem börnum er útvegað allt sem þarf til að styðja við þroska þeirra, vöxt og framfarir miðað við aldur.
Unnið er samkvæmt viðmiðum á þroskalistum sem auðvelda starfsfólki að fylgjast með og skrá framfarir barna.
Starfsfólk
Fagmennska, sveigjanleiki, traust og samvinna eru gildin okkar í kennslu og mannauðsmálum. Við hjá Framtíðarfólki höfum ákveðið að fylgja nálgun um sameiginlega ábyrgð. Starfsfólk sem vinnur „á gólfinu“ með börnum fær skýrar leiðbeiningar um hvað og hvernig það vinnur með börnunum. Við gerum ráð fyrir því að í slíku umhverfi upplifi starfsfólk okkar traust og svigrúm til að sýna frumkvæði og njóta þess að starfa með börnum og fólki sem brennur fyrir leikskólastarfi.
Farsældar barna
Leikskólum ber að stuðla að markvissri velferð og farsæld barna í öllu sínu starfi. Í leikskólum er veitt grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Á fyrsta stigi er veitt almenn þjónusta, sértæk þjónusta og einstaklingsmiðuð þjónusta.
Farsæld er skilgreind sem aðstæður sem skapa barni skilyrði til að n á líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslemgum þroska og heilsu á eigin foresndum til framtíðar.


